Niðurlagning ÁTVR myndi spara ríkinu 2,5 milljarða á ári

Fastur dálkahöfundur í Viðskiptablaðinu, Óðinn, fjallar um rekstur ÁTVR í blaðinu sem kom út í morgun. Þar er fjallað um rökin fyrir rekstri ríkiseinokunarverslunar á áfengi og mótrökin.

Hann heldur því fram að ríkið myndi spara um 2,5 milljarða á ári ef Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins yrði lögð niður. Það er rúmlega þrefalt framlag ríkisins til Vogs, sem nemur rúmum 700 milljónum á ári.

Þar er vitnað til orða Finns Árnasonar um að íslenskar verslanir geti tekið yfir áfengiskostnað án teljandi aukakostnaðar. Komist er að þeirri niðurstöðu að sparnaður Ríkisins, að teknu tilliti til tóbakshlutans, arðgreiðslna og annarra atriða sé sparnaður ríkissjóðs af því að láta íslenska verslun um áfengissölu í kringum 2,5 milljarðar á ári. Að auki sé Ríkið sé með mikla fjármuni bundna í ÁTVR.

„Afkoma ríkissjóðs myndi því batna um 25 milljarða á 10 árum. Að auki hefur ríkissjóður mikið fé bundið í rekstri ÁTVR. Eigið fé stofnunarinnar nemur 4.595 milljónum króna, en birgðir vegna tóbaks nema þar af 196 milljónum króna. Því mundi losna um 4,4 milljarða króna ef ríkiseinokunin yrði aflögð. Þá peninga gæti ríkissjóður gæti notað til að lækka skuldir sínar, sem nema reyndar 455 faldri þeirri upphæð.“ segir í pistlinum.

vb.is

hvells


mbl.is Taprekstur á Vínbúðahluta ÁTVR?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já við ESB

Ef við værum í ESB þá væri enginn matvælaskortur

já við ESB

hvells


mbl.is Stefnir í gjaldþrot hjá bændum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Matvælaöryggi er bara lýgi

Það er ljóst að Bædnasamtökin hafa verið að ljúga að almenningi í öll þessi ár.

Bændasamtökin hafa beytt miskunalausri áróðri á heimilin í landinu til þess að féflétta fátæka með ofurtollum, ríkisstyrkjum og höftum.

Bændasamtökin segja að ofurtollar viðhalda matvælaöryggi. Nú hefur komið í ljós að það er ekki rétt. Láglaunafólk má ekki einsuinni biðja um leiðréttingu launa án þess að alvarlegur matarskortur verður hér á landi.

Ljóst er að nauðynlegt er að ganga í ESB til þess að auka matvælaröryggi.

hvells


mbl.is Kjötskortur yfirvofandi á Fabrikkunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Strangheiðarlegt á undanhaldi

Þetta er stórfrétt mánaðarins.

 

Strangheiðarlegir götuveitingastaðir eru á undanhaldi.

 

Þetta er ódýrir og fljótlegir staðir með ekkert skraut. Bara matur svo getur þú keypt þér drykk hjá þeim eða komið með sjálfur.

En eins og segir í greininni, unga fólkið vill þessa amerísku skyndibitamenningu. Neytandinn ræður.

 

Spái samt comeback götueldhúsanna í bráð.

kv

Sleggjan


mbl.is Götuveitingastaðir týna tölunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn ein sönnunin

Þetta er enn ein sönnun þess að opinberir starfsmenn eru að mestu óhæfir.

Því ber að minnka umfang ríkisins mun meira en gert er.

Til hagsbótar fyrir fólkið í landinu.

hvells


mbl.is Afturkalla álit um eftirgjöf skulda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frosti og Dohop

Frosti Alþingismaður á Dohop.

Frosti vill að ríkið niðurgreiði vexti Landsbankans til að koma á ólöglegri samkeppni við bankana.

 

Víst að hann frosti er fylgjandi svona inngrip ríkisins "til hagsbótar fyrir fólkið í landinu" að sjálfsögðu....   væri þá ekki kjörið að ríkið stofnaði flug og hótel leitarfélag og fara í samkeppni við Dohop. Ríkið gæti sett mun meiri peningar í rannsóknun og þróun, koma með mun fleiri svona skýrslur og taka ekkert fyrir þessa þjónustu...  jafnvel niðurgreiða flug og þjónustu einsog Frosti vill gera á bankamarkaði.

Væri þetta ekki tilvalið?   Sama prinsipp.

Það væri gaman að viðskiptafræðingurinn Frosti tjáir sig um þessa hugmynd.

hvells


mbl.is Hótelnýting hér ein sú mesta í heimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigurður Ingi þarf að axla ábyrgð

Það er mjög mikilvægt fyrir fólkið í landinu að Sigurður Ingi segir af sér sem fyrst. Meðal annars til að skapa traust á Alþingi Íslendinga og lýðræði í landinu.

Sigurður Ingi þarf að axla ábyrgð á þessu klúðri og sínum rangfærslum.

 

hvells


mbl.is „Fullnaðarsigur“ starfsmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hæstiréttur hefur talað

Nú er það staðfest að Hagsmunarsamtök heimilanna hafa dregið almenning í landinu á asnaeyrunum.

"Þá hef­ur áður verið kom­ist að þeirri niður­stöðu að téðir skil­mál­ar gátu ekki tal­ist efn­is­lega ósann­gjarn­ir í skiln­ingi laga. Jafn­framt er ekk­ert komið fram um að þeir hafi verið óeðli­leg­ir með hliðsjón af þeim kjör­um sem al­mennt tíðkuðust á lána­markaði.“"

 

Hversu marga ætlar Hagsmunarsamtök Heimila gera gjaldþrota með málskostnaði og aðfarabeiðnum?

hvells


mbl.is Verðtryggt lán metið sanngjarnt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björt framtíð ekki með ný vinnubrögð einsog þau lofuðu. Málþóf skal notað.

Nú er þarft þingmál lagt fram. Sem mun auka lífsgæði Íslenidnga gríðarlega og draga úr gróðurhúsaáhrifum í heiminum.

En nei.

Björt framtíð ætlar að stunda málþóf. Og hótar því!!

Þessi flokkur ætlar endanlega að jarða sjálfan sig.

Flokkurinn er ekkert skárri en fjórflokkurinn.

hvells


mbl.is Vigdís hristi upp í þingheimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Asía með þetta

Flott að bera okkur saman við Asíu þegar kemur að menntamálum. Ekki norðurlöndunum.

 

Svo getum við borið okkur saman við Honk Kong og Singapor þegar kemur að frelsi. Ekki norðurlöndunum.

kv

Sleggjan


mbl.is Asía skarar fram úr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband