Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Allir vita

Það vita allir að menn gera samninga sín á milli og verðtryggður samningur gengur útá það að höfuðstóll fylgir verðbólgu.

Alveg eins og verðtryggður innlánsreikningur fylgir verðbólgu.

hvells


mbl.is Verðtryggður lánssamningur sanngjarn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagsmunarsamtök heimilana gera hjón að fílfum

HH hafa eytt dýrmætum tíma hjóna í vitleysu sem allir vissu að væri tóm steypa frá upphafi.

hvells


mbl.is Töpuðu gegn Íbúðalánasjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn eitt dæmið

Þetta er enn eitt dæmið um það þegar stjórnmálamenn reyna að hafa vit fyrir almenningi þá endar það í tómri steypu

hvells


mbl.is Stefnir í annað brot hjá RÚV?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Burt með forsjáhyggjuna

Hvað er það með vinstri menn og vilja hafa vit fyrir almenning?

Með forsjárhyggju eru vinstri menn að líta niður til fólksins í landinu og treystir þeim ekki að taka upplýsta ákvörðun.

hvells


mbl.is Afar ólík sjónarmið komið fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig þá?

Létta á miklu vinnuálagi??

Hvernig ætlar hún Guðrún að framkvæma það?

Í fyrsta lagi er mjög lítið vinnuálag hjá prófessorum í HÍ. Það sést meðal annars á því að Stefán Ólafsson hefur tima að blogga 3-4 sinnum á dag... á vinnutíma. Það er eitthvað sem venjulegur starfsmaður í kassa í Bónus gæti bara dreymt um. Og ætlar Guðrún að gera Stefáni kleypt að blogga oftar???  Á kostnað skattborgara?

Þegar Guðrún fær auka fé þá ætlar hún ekki að bæta kennsluna, auka framboð eða eitthvað slíkt. Nei hún ætlar að létta á vinnuálagi kennara svo þeir geti nú gert minna dags daglega.

hvells


mbl.is Guðrún Nordal vill verða rektor HÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Burtu með undanþágur

Allir ættu að standa jafnfætis gagnvart skattamanninum.

 

Hinsvegar má endilega lækka skatta á alla línuna. Velkomið.

Eykur veltu á öllum sviðum þjóðfélagsins. Betra en afmarkaður geiri.

kv

Sleggjan


mbl.is Miðaverð of lágt á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugarfar múslima

Hefndin. Hugarfar múslima.

Nú er múslimaríkið Jórdanía í hefndarhug.

 

Sleggjan telur það ekki vera skynsamlegt.

 

Tel viðbrögð Noregs vera til fyrirmyndar þegar þeir lenntu í hryðjuverkum. Einnig viðbrögð Frakklands.

 

En Jórdanía svarar ofbeldi með ofbeldi. Að hætti múslima.

kv

Sleggjan


mbl.is Hefndinni hvergi nærri lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Góða fólkið" og hræsnin

"Góða fólkið" vill að bílstjórinn hjá Ferðaþjónustunni verði rekinn með skömm fyrir mistök.

 

Sama fólkið styður hjúkrunarfræðinginn dyggilega þrátt fyrir að dauðsfall varð á vaktinni sem telst vera miklu alvarlegra en það sem bílstjórinn lenti í.

Góða fólkið í því dæmi kvartar undan kærunni á hjúkrunarfræðinginn, og kvartar undan álaginu á hjúkrunarfræðingum í staðinn. Bílstjórinn kvartar líka undan álagi hjá ferðaþjónustunni en Góða fólkið er alveg sama um það.

 

Það er ekki sama jón og séra jón hjá Góða fólkinu.

kv

Sleggjan


mbl.is Aðalmeðferð frestast vegna matsbeiðni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn hoppar á vagninn með ógeðfelldum hætti

Ef þetta á ekki að vera PR stunt, af hverju var þá Eygló að tilkynna að hún ætlaði að tala við borgarstjóra á Facebook? Gat hún ekki beðið um fund með honum personulega með emaili eða símtali. 

 

http://eyjan.pressan.is/frettir/2015/02/05/felagsmalaradherra-bodar-borgarstjora-a-sinn-fund-vegna-mals-olafar-thorbjargar/

 

http://eyjan.pressan.is/frettir/2015/02/04/fer-fram-a-aukafund-i-velferdanefnd-vegna-ferdathjonustu-fatladra-stadan-alvarleg/

 

Nú eru tveir framsóknarþingmenn (einn ráðherra) búnir að blanda sér í þetta mál. Mál sem á alls ekki að vera á höndum þingmanna eða ráðherra.

Þetta kallast að hoppa á vagninn.

Tilfinningaklám í hæsta gæðaflokki.

 

Hér er Sleggjan ekki að gera lítið úr alvarleika málsins. Heldur er ég að efast um stjórnsýslunna í kringum þetta. Að hið háa alþingi eða ráðherra skulu yfir höfuð blanda sér í einstökum málum sem snúa að persónum hér á landi.

 

 

kv

Sleggjan


mbl.is Kann hvorki að festa belti né losa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sturla Jónsson í afneitun

Sturla Jónsson skuldar.

Hefur ekki borgað af lánum í mánuði og ár. Situr samt fastast í íbúðinni. Nú ætla lánastofnanir að gera eitthvað í málinu þá verður hann mjög hissa. +

 

Er hans lógík að hann eigi ekki að borga af lánum en við hin þurfum að borga?

 

Hrunið hafði áhrif á okkur öll. Ekki bara hann.

kv

Sleggjan

Hægt er að smella á myndina til að stækka hana.
Untitledfff


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband