17.9.2014 | 15:53
Óvarlegt málfar
Að kalla þetta þrælahald er móðgun við þá sem eru í raunverulegu þrælahaldi.
"Til þess að fá vinnu í verksmiðjunum þurfa vinnumenn oft að greiða með sér en gjaldið er jafnan greitt í formi vinnu"
En það gleymist að nefna það að verksmiðjan er ekki að neyða neinn í vinnu. Það er greinilega mikil aðsókn í þessa vinnu og því er oft greitt með vinnunni í formi ólaunaðri vinnu. Þetta er vel þekkt og margir Íslendingar stunda "internship" í mismunandi formi.
Þrælahald er nauðung. Að sækja um vinnu af fúsum og frjálsum vilja er ekki þrælahald.
Þetta er frjáls viðskipti sem forðar fólki frá fátækt. Í þessum löndum er það annaðhvort vinna í verkmiðju eða róta á ruslahaugum.
Margir aðilar í Bandaríkjunum og á Íslandi vilja frekar að þessi störf eiga að færast til Evrópu og láta þá börnin í Malasíu róta í ruslahaugunum í staðinn.
Að róta kauplaust á ruslahaugum er hinn eina sanna þrælahald
Þrælahald í raftækjaverksmiðjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.