Enga hugmynd

"Ein skýr­ing­in er sú að það að spila fjár­hættu­spil „on­line“ sé meira ánetj­andi en ann­ars­kon­ar spil­un, hugs­an­lega vegna þess að ver­ald­ar­vef­ur­inn er alltaf aðgengi­leg­ur all­an sól­ar­hring­inn alla daga árs­ins. Hraðinn er líka meiri á ver­ald­ar­vefn­um, það gæti verið hugs­an­leg skýr­ing. Svo gæti líka verið að þeir sem eiga við vanda að stríða séu ein­fald­lega að færa sig meira yfir í spil á net­inu, nú eða bara að þeir sem spila mikið yfir höfuð séu að færa sig yfir í tölv­una. Það er eig­in­lega ómögu­legt að gera upp á milli þess­ara skýr­inga. Þetta er meðal ann­ars það sem menn eru að tak­ast á við núna,“ seg­ir hann. "

 

ok... við erum með doktur frá Harvar og menn hafa ekki hugmynd um hvað menn eru að tala.

Hefur lottó aukist meira miðað við höfðatölu? Ef lottókaup hefur aukist um 10% seinustu 3ár þá hefur mannfjöldin á Íslandi einnig aukist um 10%... nettó er enginn aukning per íbúa.

Svo er mjög sérstakt að þau túlka gögnin þannig að fjárhættuspil hafa aukist. Vissulega hefur póker á netinu aukist síðan 2007. En það er vegna þess að fleiri hafa aðgang að netinu og pókherhópar mætast sjaldnar í heimahúsum að spila. 

Það er með öðrum orðum ekkert að marka hvað þetta fólk er að segja.

hvells


mbl.is Fjárhættuspil aukist eftir hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband