20.2.2015 | 18:06
Fínt á spenanum
Ríkisstarfsmenn fara létt með því að biðja um frí. Enda svo lítil eftirspurn eftir þeim og ekkert fer á hliðina þegar þeir hætta að vinna.
En vinnandi fólk í raunhagkerfinu geta ekki leyft sér að væla um frí, enda sjá þeir um að halda ríkisspenastarfsmönnum uppi.
kv
Sleggjan
Þingmenn vildu fá vetrarfrí | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Á Alþingi hvílist kjaftakvörnin,
kvað það vera þrautavörnin,
meðalþroski og greind,
mæld voru með leynd,
og því miðast við grunnskólabörnin!
Þjóðólfur ríki í Frekjuskarði (IP-tala skráð) 21.2.2015 kl. 03:12
VOTTORÐ TIL ÞEIRRA ER MÁLIÐ VARÐAR:
Þingmenn víst þurftu næði,
þrútnir og lotnir af mæði,
er komið var uppistand,
í kolmórautt föðurland,
og klemmdi á hugsanaflæði!
Ítarefni:
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/02/20/thingmenn_vildu_fa_vetrarfri_2/
http://www.mbl.is/folk/frettir/2015/02/21/naerbuxur_threngdu_ad_thingmanni/
Dagfinnur dýralæknir (IP-tala skráð) 21.2.2015 kl. 10:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.