2.6.2015 | 18:40
Líttu þér nær
Samflokksmaður hans stundar einmitt þessi vinnubrögð. Ekki mikil samvinna hjá BF þó þeir þykist vera það.
kv
Sleggjan
Getum við ekki gert betur? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Takk Sleggjuhvellur,
Fyrir að sína því sem ég hafði að segja áhuga
http://www.althingi.is/altext/upptokur/raeda/?raeda=rad20150602T135022
Eitt hrós var gefið í ræðunni - og því var ekki beint að samflokksmönnum.
Því finnst mér þetta hálf ódýr gagnrýni hjá þér um að ég eigi að líta mér nær.
Ég er líka á því að þurfir að setja í aðeins betri linka til að sýna fram á að BF stundi samskonar vinnubrögð og ég var að gagnrýna í minni ræðu.
Brynhildur Pétursdóttir er vissulega staðföst og með skoðanir, eins og við hin sem berjumst fyrir frjálslyndara og betra samfélagi í Bjartri framtíð, og betri stjórnsýslu. Hún er ekki sú eina sem hefur talað af hreinskilni um að bæta þurfi samráð og samskipti á þinginu, og hún er langt í frá sú eina sem hefur gagnrýnt starfshætti forsætisráðherra, skammsýni í opinberum fjárútlátum eða vöntun á framtíðarsýn. Það að tala með gagnrýnum hætti (eins og meirisegja sumir meðlimir stjórnarflokkana hafa gert með mál sem ekki hafa náð í gegnum þingið, mér dettur í hug Náttúrupassi) er ekki það sama og að stunda vinnubrögð gömlu flokkana á Alþingi.
Eldar (IP-tala skráð) 3.6.2015 kl. 23:57
Var nú að tala um Brynhildi og hún er í þínum flokki.
Þú varst í ræðu þinni að tala sem meðlimur BF.
Allavega lít ég þannig á málið.
kv
Sleggjan
sleggjuhvellur, 5.6.2015 kl. 22:36
Ef þú vilt útlista Eldar hvað það er sem BF vill gera í opinberum fjárútlátum.
Við erum hérna með nokkuð hundruð heimsóknir á dag. Ég skal copy paste-a það sem þú hefur að segja og setja í sér bloggfærlsu beina tilvitnun frá þér.
kær kveðja
Sleggjan
sleggjuhvellur, 5.6.2015 kl. 22:37
Svona í ljósi þess að þú segir þetta:
Hún er ekki sú eina sem hefur talað af hreinskilni um að bæta þurfi samráð og samskipti á þinginu, og hún er langt í frá sú eina sem hefur gagnrýnt starfshætti forsætisráðherra, skammsýni í opinberum fjárútlátum eða vöntun á framtíðarsýn
sleggjuhvellur, 5.6.2015 kl. 22:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.