galið

Hvernig á eitt lítið verkalýsfélag að framfylgja hundruðu milljarða útflutningsbann?

Eru þessir verkalýðsdólgar búnir að reikna út hver árhifin verða fyrir fólkið í landinu ef það gegnur í gegn?

 

hvells


mbl.is Útflutningsbann í myndinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkalýðsdólgar

Verkalýðsfélög á Íslandi hafa algjörlega farið framúr sér í þessu máli.

Verkalýðsleiðtogar líta oft til Þýskalands til fyrirmyndar en verkalýðsfélög í Þýskalandi mundi aldrei ganga fram af VW þannig að við blasir gjaldþrot. Þetta er galin aðferð hjá þessum verkalýðsdólgum.

sérstaklega þegar krafa ISAL sé mjög eðlileg einsog Rannvegi segir

"Höml­urn­ar á fyr­ir­tækið eiga sér enga hliðstæðu á Íslandi og það er skýr krafa að þær verði rýmkaðar "

 

hvells


mbl.is Hömlur án hliðstæðu hér á landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einkaframtakið á að blómstra

Einkarekstru er alltaf hagkvæmari en opinber rekstur.

Þessvegna er nauðsynlegt að bjóða út sorphirðuna.

Sorphirðan er boðin út í nær öllum sveitafélögum á Íslandi og RVK borg á að gera það líka. Sérstaklega með tillit til hallarekstur þar á bæ.

hvells


mbl.is Sorpið í borginni verði boðið út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tryggingagjald verður að lækka

Það er mikilvægt að tryggingagjaldið fer að lækka.
Með lækkun tryggingagjald gefur fyrirtækjum svigrúm til þess að ráða fleira fólk og þar með minnka atvinnuleysi enn meira.

 

Það mælir allt með því að lækka tryggingagjaldið sem bitnar fyrst og fremst á minni fyrirtækjum og sprotafyrirtækjum þar sem launakostnaðurinn er mikill.

 

hvells


mbl.is 138 milljarða atvinnuleysisbætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öllum öðrum að kenna

Þetta er dæmigerður málflutningur frá Hagsmunarsamtökum heimilana.

HH tapaði dómsmál í Hæstarétti. Í stað þess að sýna auðmýkt og viðurkenna að hafa rangt fyrir sér þá koma þeir með galna yfirlýsingu. Hæstiréttur er ekki starfi sínu vaxin og dæmir ekki eftir íslenskum lögum.

 

Það er ekkert annað.

 

Þetta er hæstarétti að kenna.

Það er verðtryggingunni að kenna að ég tók óskynsamleg lán.

Það er öllum öðrum að kenna að ég hafi það skítt...

hvells


mbl.is „Hæstiréttur dæmir íslensk lög ómerk“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðstefnan í París

Tugþúsundir manna mun fljúga til París 1.desember fyrir þessa heimskulegu umhverfissamkomu.

Það koma allir á flugvélum.

Mjög stór hluti kemur á einkaflugvélum.

 

Ég býst við að Plane stupid samtökin mun mótmæla kröftuglega.

 

uuhhh   ekki?

 

ok

 

hræsnarar

 

hvells


mbl.is Gagnrýna Arsenal fyrir 14 mínútna flug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flýja til ESB

Unga fólkið er að flýja til ESB.

Þar er evra, lágir vextir, engin verðtrygging og hærri laun.

 

Ísland þarf að ganga í ESB til að vera þjóð meðal þjóða svo unga fólkið vill búa hér áfram.

 

ESB. Já takk!!

 

hvells


mbl.is Unga fólkið að flytja frá Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aflýsa þessu

Það á bara að aflýsa þessari ráðstefnu. Þetta eru bull. Þetta er svindl. Þarna ráða sósíalistar ferðinni. Þetta er árás á kapitalismann. Svo eru margir miskunalausir samherjar sem vita ekki betur. Misvitrir pólitikusar einsog Gunnar Bragi klappa með.

 

Þetta er svo sorglegt.

 

hvells


mbl.is 1.000 meinað um komu til Frakklands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skal selja

Ríkið á að selja þetta svæði ekki seinna en í gær.

Ríkið hefur ekki axlað sína skyldur um að halda þessu svæði sómasamlegu.

Það þarf að einkavæða svæðið og nota peningana til að greiða niður skuldir. Þá geta landeigendur haldið þessu svæði við án afskipta stjórnmálamanna.

hvells


mbl.is Ríkið hafnar tilboði í Geysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frelsi

Það er jákvætt þegar auka á frelsi. Afnema forræðishyggju. Fólk á að taka ábyrgð á sínum eigin ákvörðunum.

En helstu rök fyrir banni er fólk einsog þeir í Hagsmunasamtökum Heimilana sem fara að væla þegar krónan fellur og það endi á ríkinu til að borga skuldir annara.

"Hver ein­stak­ling­ur eða aðili get­ur tekið lán ef hann hef­ur nægi­leg­ar tekj­ur í þeim gjald­miðli sem lánið teng­ist til að stand­ast greiðslu­mat, eða hef­ur staðist greiðslu­mat þar sem gert er ráð fyr­ir veru­leg­um geng­is­breyt­ing­um og veru­leg­um hækk­un­um á vöxt­um, eða hef­ur staðist greiðslu­mat og legg­ur fram viðeig­andi fjár­hags­leg­ar trygg­ing­ar sem eyða gjald­eyr­isáhættu hans vegna láns­ins á láns­tím­an­um."

 

Einsog sést þá er mjög erfitt að taka gengislán. Í raun eru þessi lán eingöngu fyrir 5-10% af Íslendingum. Þeim ríku fyrst og fremst. Og þeim sem starfa erlendis eða fá greitt laun í gjaldeyri.

hvells


mbl.is Gengislán verði aftur heimiluð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband