Þarft og jákvætt skref famávið fyrir heimilin í landinu

"Aðspurð hvort hún telji þjón­ust­una eiga er­indi til Íslend­inga seg­ir hún: „Ekki spurn­ing. Því meiri sam­keppni, því betra. Svo eru kost­ir Uber ótví­ræðir vegna upp­lýs­ing­anna sem er að finna í app­inu og hins ný­stár­lega greiðslu­máta sem hent­ar snjallsíma­eig­end­um vel,"

 

Samkeppni er góð.

Verð lækkar

Þjónustan eykst.

 

Þegar UBER kemur til Íslands þá mun lífskjör almennings aukast til muna.

Uber er fyrir fólkið í landinu.

hvells


mbl.is Þjónusta Uber svínvirkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birnuson

Nokkrum árum seinna verða svo helstu samgöngutækin innanbæjar alsjálfvirkir fólksbílar (án bílstjóra). Þjónusta á borð við Uber gæti lifað þá byltingu af (sem munaður sem fólk leyfir sér við sérstök tækifæri) en venjulegir leigubílar verða úr sögunni sem og strætisvagnar.

Birnuson, 12.12.2014 kl. 02:01

2 identicon

mbl áfram í sínum kynningarham. bíð reyndar alltaf eftir því að það komist að fleiri en eitt sjónarmið fram.

hvernig er það aukin samkeppni þegar í stað þess að nokkur fyrirtæki sjái um leigubílaakstur í hverri borg að þá sé eitt fyrirtæki (sem mörg af rikustu fyrirtækjum og aðilum í heimum eiga) séu stærstir í öllum heiminum

hver veit hvaða verð uber bíður þegar þeir standa nánast einir eftir.

það er alltaf jafn gaman að sjá lífskjör almennings aukast sérstaklega þegar enn ein stéttin færist nær lágmarkslaunum.

hvernig aukast svo lífskjörin fyrir almenning þegar 30% af leigubílatekjunum streyma úr landi (minni skattinnheimta og tap á gjaldeyri), með tilfallandi mengun með alla bílana sem uber þarf á ferð fyrir sitt framboð svo að verðin séu lág, ekki er heldur hægt að segja að götunum hér vanti fleiri bíla á þær og hvert verður svo virði bílanna sem verður búið að keyra á endalaust fyrir nokkrar aukakrónur.

axel sprenglærður í hagfræðinni. það væri kannski nær fyrir hann að átta sig á af hverju fólki finnst hlutir eins og leigubílaakstur svona dýr og hvernig aukinn misjöfnuður breytir viðhorfi fólks.

magnús hvað með bílstjórann sem ég gef lága einkunn af því hann vildi ekki útvega fíkniefni?

það væri hægt að skrifa langan pistil um einkunnakerfið þeirra og misnotkunina sem það bíður upp á.

birnuson þar sem google er bæði stór fjárfestir í uber og virkir í þróun sjálfvirkum bílum að ef það er ekki næsta skref fyrir uber að þá er það eitt af þeim næstu.

tryggvi (IP-tala skráð) 12.12.2014 kl. 04:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband