Íbúunum sjálfum að kenna

Íbúar kusu yfir sig XD í öll þessi ár. XD er þekkt fyrir að kunna ekki að fara með fjármál (fyrir utan Nesið og Grb). 

".....halla­rekst­ur hafi verið viðvar­andi þar frá 2002 til 2014 sam­kvæmt út­tekt end­ur­skoðun­ar­fyr­ir­tæk­is­ins KPMG"

Þeir hafa verið í halla meira en tíu ár, nú er komið að skuldadögum, þá þýðir ekkert að væla í ríkinu. Það kom að öðrum flokkum en XD að þrífa upp skítinn eftir þá sjálfa. Alveg eftir bókinni.

Sleggjan bjó í Reykjanesbæ til 2008 þannig Sleggjan veit hvernig andrúmsloftið var í bænum. XD var best, aldrei gagnrýnt. Stjórnarandstaðan í bæjarstjórn reyndi að setja út á fjármálin hjá þeim, sýndu gögn sem sýndu svart á hvítu, þetta var allt hlegið út af borðinu.

Sorglegt að þrátt fyrir að Sleggjan sé alvöru hægri maður, þá þarf Sleggjan að vera mjög á móti XD í Reykjanesbæ.

Fleira merkilegt kom fram:

"Íbúar bæj­ar­ins munu nú finna fyr­ir af­leiðing­um þess að ekki var tekið á vanda sem safn­ast hafði upp. Stjórn­end­ur bæj­ar­ins gripu ekki til ráðstaf­ana til að stöðva þessa slæmu þróun held­ur gáfu frek­ar í en hitt"

Íbúar reyndu að kenna öðrum um en svarið er:

„Menn geta auðvitað haft á því ólíka skoðun hvort að eft­ir­lits­nefnd­in hefði átt að leggja til harðari úrræði, svo sem að láta fara fram rann­sókn á fjár­mál­um sveit­ar­fé­lags­ins eða eitt­hvað annað í þeim dúr en hins veg­ar verður í því sam­bandi að hafa í huga að sveit­ar­stjórn­in hef­ur aldrei til­kynnt nefnd­inni um fjárþröng eins og skylt er sam­kvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lög­um ef um slíkt er að ræða,“ sagði Ólöf um ábyrgð eft­ir­lits­nefnd­ar­inn­ar."

 

"Sveit­ar­fé­lög­in beri sjálf ábyrgð á sín­um fjár­mál­um enda sé það verk­efni þeirra að lög­um að gera það."

kv

Sleggjan


mbl.is Reyknesingar líða fyrir stöðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: sleggjuhvellur

Það liggur fyrir að það á að kreysta íbúana fyrir þessi mistök.

sorglegt

hvells

sleggjuhvellur, 18.2.2015 kl. 21:48

2 identicon

Nei,það er ekkert sorglegt við það.

Hvert einasta mannsbarn á landinu öllu hristi hausinn í heilan áratug yfir því hvernig gæti staðið á því að þessi flokkur næði aftur og aftur hreinum meirihluta þrátt fyrir að flokkurinn væri skipulega búinn að stela öllum eignum bæjarins og skuldsetja hann fjandans til í tóma vitleysu.

Allir læsir menn vissu fyrir 10-15 árum síðan hvert stefndi, samt var flokkurinn, ekki bara kosinn aftur heldur með hreinum meirihluta.

Það er engin leið að vorkenna þessu fólki fyrir að þurfa sjálft að taka afleiðingunum af þessari heimsku kjósenda á svæðinu.

Hægri menn hljóta að vera á móti XD allstaðar, ekki bara í Reykjanesbæ, sjallar eru ljórárum frá því að hafa neitt með hægri stjórnmál að gera.

Þetta er sérhagsmunaklíka þar sem "frjáls markaður" er hugtak dregið upp á tyllidögum en sést hvergi í verkum flokksins.

Sigurður (IP-tala skráð) 18.2.2015 kl. 21:57

3 Smámynd: sleggjuhvellur

Nokkuð til í þessu hjá þér Sigurður.

kv

slegg

sleggjuhvellur, 19.2.2015 kl. 00:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband